Sony Xperia M2 Aqua - Notkun staðsetningarþjónustu

background image

Notkun staðsetningarþjónustu

Staðsetningarþjónustur gera forritum á borð við Kort og myndavélina kleift að nota

upplýsingar frá farsímakerfum og Wi-Fi® netum ásamt GPS-upplýsingum til að áætla

staðsetningu þína. Ef þú ert ekki í hreinni línu við GPS-gervitungl getur tækið ákvarðað

staðsetninguna með Wi-Fi® eiginleikanum. Ef þú nærð ekki Wi-Fi® neti getur tækið

ákvarðað staðsetninguna með farsímakerfi.
Til þess að láta tækið finna staðsetningu þína þarftu að kveikja á

staðsetningarþjónustum.

Gagnatengingargjöld kunna að verða innheimt þegar þú tengir tækið við internetið.

Kveikt eða slökkt á staðsetningarþjónustu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Staðsetning og pikkaðu á kveikja/slökkva-

takkann til að slökkva eða kveikja á staðsetningarþjónustu.

3

Ef þú valdir að kveikja á staðsetningarþjónustu í skrefi 2 pikkarðu á

Samþykkja til

staðfestingar.

GPS-nákvæmni aukin

Þegar þú notar GPS í fyrsta sinn í tækinu getur það tekið 5 til 10 mínútur að finna

staðsetningu þína. Til að auðvelda leitina skaltu gæta þess að vera í beinni augsýn við

himininn. Stattu kyrr og ekki hylja GPS-loftnetið (auðmerkt svæði á myndinni). GPS-merki

berst í gegnum ský og plast en öðru máli gegnir um flesta fasta hluti á borð við hús og

fjöll. Ef staðsetningin finnst ekki eftir nokkrar mínútur skaltu færa þig á annan stað.