Sony Xperia M2 Aqua - Almennar myndavélarstillingar

background image

Almennar myndavélarstillingar

Yfirlit yfir tökustillingar

Öflugri sjálfvirkni

Hagræddu stillingunum þínum eftir umhverfi.

Handvirkt

Breyttu stillingum myndavélarinnar handvirkt.

AR áhrif

Taktu ljósmyndir eða myndskeið með sýndarumhverfi og táknum.

Myndhrif

Bættu áhrifum við myndir eða myndskeið.

Timeshift burst

Finndu bestu myndina í röð mynda.

Víðmynd

Taktu gleiðhyrndar myndir og víðmyndir.

Andlitslagfæring

Taktu myndir með rauntímastílhrifum.

85

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ofursjálfvirkni

Ofursjálfvirkni greinir við hvaða aðstæður þú ert að taka mynd og aðlagar stillingar

sjálfkrafa í samræmi við það til að tryggja að þú náir sem bestri mynd.

Handvirk stilling

Notaðu handvirka stillingu þegar þú vilt stilla myndavélina handvirkt.

AR áhrif

Þú getur sett AR (aukinn raunveruleika) áhrif á myndirnar eða myndskeiðin þín til að gera

þær skemmtilegri. Þegar myndavélin er notuð gerir þessi stilling þér kleift að samþætta

þrívíddarumhverfi í myndirnar eða myndskeiðin þín. Veldu aðeins umhverfið sem þú vilt

stilla stöðu þess í myndglugganum.

Myndbrella

Þú getur notað mismunandi áhrif á myndirnar þínar. Þú getur t.d. bætt Fortíðaráhrifum við

til að láta myndir virðast eldri eða Skissuáhrifum til að fá skemmtilegri mynd.

Sweep Panorama

Þú getur tekið breið- og víðmyndir úr láréttri og lóðréttri stefnu í auðveldri halda inni og

sveiflu hreyfingu.

Víðmynd tekin

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og veldu svo .

3

Til að velja tökuátt pikkarðu á

.

4

Ýttu á myndavélartakkann og færðu myndavélina hægt og stöðugt í stefnu

hreyfingar sem er sýnd á skjánum.

Timeshift burst

Myndavélin tekur 31 myndar myndaröð á tveimur sekúndum – einni sekúndu fyrir og eftir

að ýtt er á myndavélartakkann. Þú getur því fundið hina fullkomnu mynd.

Timeshift burst notuð

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á , veldu síðan .

3

Ýttu myndavélartakkanum alveg niður og slepptu honum síðan til að taka myndir.

Myndirnar sem eru teknar birtast á smámyndaskjánum.

4

Flettu í gegnum smámyndirnar og veldu myndina sem þú vilt vista, pikkaður síðan

á .

Andlitsmyndir lagaðar

Notaðu andlitsmyndalagfæringuna til að laga andlitsmyndir jafnóðum til að tryggja sem

besta útkomu. Þú getur einnig notað

Töfrageisli stillinguna til að lýsa og slétta húð

fyrirsætunnar og bæta við kastljóssáhrifum í augun.

Hvernig andlitsmyndir eru lagaðar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og svo á .

3

Strjúktu upp eftir skjánum til að sýna stílval og veldu svo andlitsmyndastíl fyrir þínar

myndir.

4

Pikkaðu á skjáinn eða strjúktu niður eftir honum til að fela stílval.

5

Strjúktu til vinstri til að sýna rammaval og veldu svo skrautramma.

6

Pikkaðu á myndavélarskjáinn eða strjúktu til hægri til að fela rammaval.

86

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Hvernig Töfrageislaeiginleikinn er notaður

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á og svo á .

3

Til að virkja Töfrageislaeiginleikann pikkarðu á og dregur svo sleðann við hliðina

Töfrageisli til hægri.

4

Veldu sérsniðið mynstur til að nota kastljóssáhrif inni í augum.

Myndavélaforrit sótt

Þú getur sótt ókeypis eða greitt fyrir myndavélaforrit frá Google Play™ eða öðrum

stöðum. Áður en þú hleður niður skaltu ganga úr skugga um að þú sért með

nettengingu, helst Wi-Fi® til að takmarka gagnaumferðargjald.

Til að sækja myndavélaforrit

1

Opnaðu myndavélinaforrit.

2

Pikkaðu á og síðan á

HÆGT AÐ SÆKJA.

3

Veldu forritið sem þú vilt sækja og fylgdu leiðbeiningunum til að ljúka

uppsetningunni.

Flýtiræsing

Notaðu flýtiræsingarstillingar til að ræsa myndavélina þegar skjárinn er læstur.

Einungis ræsa

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina þegar skjárinn er læstur með því að ýta á

myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og smella af

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og tekið mynd sjálfkrafa þegar skjárinn er læstur

með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Ræsa og taka upp myndskeið

Þegar kveikt er á þessari stillingu getur þú ræst myndavélina og hafið að taka upp myndskeið þegar skjárinn

er læstur með því að ýta á myndavélarhnappinn og halda honum inni.

Slökkt

Hnitamerking

Merktu myndir með upplýsingum um hvar þær voru teknar.

Snertimyndataka

Finndu fókussvæði og snertu svo myndavélarskjáinn með fingrinum. Myndin er tekin um

leið og þú tekur fingurinn af.

Hljóð

Veldu að kveikja eða slökkva á lokarahljóði.

Gagnageymsla

Þú getur valið að vista gögnin þín annað hvort á færanlegt SD-kort eða yfir í innri geymslu

tækisins.

Innri geymsla

Myndir eða myndskeið eru vistuð á minni tækisins.

SD-kort

Myndir eða myndskeið eru vistuð á SD-kort.

Hvítjöfnun

Þessi stilling, sem er aðeins í boði í

Handvirkt tökustillingu, stillir litajafnvægið í samræmi

við birtuskilyrði. Hún gerir þér líka kleift að stilla lýsinguna handvirkt á EV-sviðinu -2.0 EV til

87

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

+2.0 EV. Til dæmis geturðu aukið birtu myndarinnar eða minnkað heildarlýsinguna með

því að pikka á plús- eða mínusstjórntakkana þegar hvítjöfnunarstillingartáknið birtist.

Sjálfvirk

Stillir litajafnvægið sjálfkrafa til að passa við birtuskilyrðin.

Ljósapera

Stillir litajafnvægi fyrir hlýja birtu, eins og í lýsingu frá ljósaperum.

Flúrljós

Stillir litajafnvægið að flúrlýsingu.

Dagsbirta

Stillir litajafnvægið fyrir sólskin utandyra.

Skýjað

Stillir litajafnvægið að skýjuðu veðri.