Sony Xperia M2 Aqua - Myndavélarstillingar

background image

Myndavélarstillingar

Til að stilla myndavélastillingar

1

Kveiktu á myndavélinni.

2

Pikkaðu á til að birta allar stillingar.

3

Veldu stillinguna sem þú vilt breyta og breyttu að vild.

Yfirlit yfir stillingar myndavélar

Upplausn

Veldu upplausn og hlutfall áður en mynd er tekin. Mynd með meiri upplausn þarf meira

minni.

8MP

3264×2448(4:3)

8 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í mikilli

upplausn.

5MP

3104×1746(16:9)

5 megapixla mynd með hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í

mikilli upplausn.

2MP

1920×1080(16:9)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 16:9. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á víðskjá.

2MP

1632×1224(4:3)

2 megapixla mynd í hlutföllunum 4:3. Hentar fyrir myndir sem á að skoða á venjulegum skjá eða prenta í mikilli

upplausn.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

Tímastillir

Með tímastillinum er hægt að taka mynd án þess að halda á tækinu. Notaðu þennan

eiginleika til að taka sjálfsmyndir eða hópmyndir þar sem allir geta verið á myndinni. Þú

getur einnig notað tímastilli ef þú vilt koma í veg fyrir að myndavélin hristist í myndatöku.

Kveikt (10 sek.)

Veldu 10 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Kveikt (2 sek.)

Veldu 2 sekúndna bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Kveikt (0,5 sek.)

Veldu hálfrar sekúndu bið frá því að pikkað er á myndavélarskjáinn þar til að myndin er tekin.

Slökkt

88

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Mynd er tekin um leið og þú pikkar á myndavélarskjáinn.

Smile Shutter™

Notaðu eiginleikann Smile Shutter™ til að ákveða hvernig brosi myndavélin bregst við

áður en mynd er tekin.

Fókusstilling

Fókusvalkosturinn stjórnar hvaða hlut myndarinnar á að vera skarpari. Þegar kveikt er á

sjálfvirka fókusnum heldur myndavélin áfram að stilla fókusinn þannig að svæðið í

fókusrammanum er alltaf skarpt.

Stakur sjálfv. fókus

Myndavélin stillir sjálfkrafa fókusnum á valið myndefni. Kveikt er á sjálfvirka fókusnum. Snertu og haltu inni

myndavélaskjánum þangað til fókusramminn breytir um lit sem bendir á að búið sé að stilla fókusnum. Myndin

er tekin þegar þú sleppir fingrinum.

Andlitsgreining

Myndavélin nemur allt að fimm andlitum, sem bend er á í römmum á skjánum. Myndavélin stillir fókusinn

sjálfkrafa á andlitið sem er næst. Þú getur einnig valið hvaða andlit á að stilla fókusnum á með því að pikka á

það á skjánum. Þegar þú pikkar á myndavélaskjáinn sýnir litaður rammi hvaða andlit er valið og í fókus. Ekki

er hægt að nota andlitsgreiningu fyrir allar tegundir umhverfis. Kveikt er á sjálfvirka fókusnum.

Snertifókus

Snertu sérstakt svæði á myndavélaskjánum til að nota fókussvæðið. Slökkt er á sjálfvirkum fókus. Snertu og

haltu inni myndavélaskjánum þangað til fókusramminn breytir um lit sem bendir á að búið sé að stilla

fókusnum. Myndin er tekin þegar þú sleppir fingrinum.

Eltifókus á myndefni

Þegar þú velur hlut með því að snerta hann í leitaranum, eltir myndavélin hann fyrir þig.

Þessi stilling er aðeins til staðar í

Handvirkt tökustillingu.

HDR

Notaðu HDR (hátt virkt svið) stillinguna til að taka mynd á móti sterkri baklýsingu eða við

aðstæður þar sem birtuskilin eru skörp. HDR bætir upp fyrir tapið á smáatriðum og skilar

mynd sem sýnir bæði dökk og ljós svæði.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .

ISO

Þú getur dregið úr óskýrleika sem stafar af slæmum lýsingarskilyrðum og hreyfingu á

myndefni með því að auka ISO-næmi. Og viljirðu taka bjarta mynd við slæm

lýsingarskilyrði geturðu stillt ISO-næmi á hærra gildi.

Sjálfvirkt

Stillir ISO-næmi sjálfkrafa.

100

Stillir ISO-næmi í 100.

200

Stillir ISO-næmi í 200.

400

Stillir ISO-næmi í 400.

800

Stillir ISO-næmi í 800.

1600

Stillir ISO-næmi í 1600.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

89

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Mæling

Þessi eiginleiki ákvarðar sjálfkrafa rétta lýsingu með því að mæla magn ljóssins í mynd

sem á að taka.

Miðjun

Stillir lýsingu á miðju myndarinnar.

Meðaltal

Reiknar út lýsingu samkvæmt magni ljóssins á allri myndinni.

Punktur

Stillir lýsingu á mjög litlum hluta myndarinnar sem á að taka.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .

Hristivörn

Erfitt getur reynst að halda tækinu kyrru við myndatöku. Hristivörnin dregur úr áhrifum

vegna smávægilegra hreyfinga handarinnar.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt .

Forskoðun

Þú getur valið að forskoða myndir eða myndskeið sem þú hefur nýlokið við að taka.

Ótakmarkað

Þegar þú hefur tekið mynd eða myndskeið birtist forskoðunin.

5 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 5 sekúndur að töku lokinni.

3 sekúndur

Forskoðunin á myndinni eða myndskeiðinu sést í 3 sekúndur að töku lokinni.

Breyta

Að töku lokinni opnast myndin eða myndskeiðið svo hægt sé að gera breytingar.

Slökkt

Myndin eða myndskeiðið vistast að töku lokinni og engin forskoðun birtist.

Andlitskennsl

Þú getur skráð andlit í myndavélarforritinu svo myndavélin fókusi sjálfkrafa á þau þegar

þau birtast í glugganum.

Flass

Notaðu flassið til að taka myndir þegar lýsing er léleg eða myndefni er baklýst. Eftirfarandi

valmöguleikar standa til boða þegar þú pikkar á flasstáknið á myndavélarskjánum:

Sjálfvirkt

Myndavélin velur sjálfkrafa hvort lýsingaraðstæður kalla á notkun flass.

Fylliflass

Notaðu þessa stillingu þegar bakgrunnurinn er bjartari en myndefnið. Þessi stilling kemur í veg fyrir

óæskilega dökka skugga.

Laga rauð augu

Dregur úr rauðum lit í augum þegar tekin er mynd.

Slökkt

Slökkt er á flassinu. Stundum geta myndgæði verið betri án flass, jafnvel þótt birtuskilyrði séu léleg.

Stöðug hönd er forsenda töku góðra mynda án flass. Notaðu tímastillingu til að forðast að myndir verði

óskýrar.

Vasaljós

Þegar þú tekur myndir kviknar á flassljósi.

90

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Val á umhverfisstillingu

Umhverfisstilling gerir þér kleift að setja upp myndavélina á fljótlegan hátt fyrir algengar

aðstæður með því að nota forstilltar umhverfisstillingar. Myndavélin velur stillingar sem

passa við valið umhverfi, til að tryggja bestu mögulegu myndina.

Slökkt

Slökkt er á umhverfisstillingu og þú getur tekið myndir handvirkt.

Mjúk húð

Taktu andlitsmyndir með ýktum fegðurðaráhrifum.

Mjúk smella

Notað fyrir töku mynda með mjúkum bakgrunni.

Óskýrleikavörn

Notað til að lágmarka hristing þegar tekið er í rökkri.

Landslag

Notað fyrir landslagsmyndir. Myndavélin stillir fókus á fjarlæga hluti.

Baklýsingar-leiðréttingar-HDR

Notað til að bæta atriði í mjög ólíkum myndatökum. Innbyggða baklýsingarleiðréttingin metur myndina

og stillir hana sjálfkrafa til að lýsa myndina rétt.

Andlitsmynd að nóttu

Notað þegar andlitsmyndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma

verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.

Næturmynd

Notað þegar myndir eru teknar að nóttu til eða í dauflýstu umhverfi. Vegna langs lýsingartíma verður

að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu yfirborði.

Handstýrð ljósaskipti

Notað til að taka dauflýstar myndir og draga úr suði og þoku.

Mikið ljósnæmi

Notað til að taka myndir án flass í dauflýstu umhverfi. Dregur úr þoku.

Matur

Notað til að taka myndir af mat í björtum litum.

Gæludýr

Notað til að taka myndir af gæludýrum. Dregur úr þoku og rauðum augum.

Strönd

Notað til að taka myndir af umhverfi við sjó eða vatn.

Snjór

Notað í björtu umhverfi til að koma í veg fyrir oflýstar myndir.

Partí

Notað við töku af myndefni í illa lýstu umhverfi innandyra. Þetta umhverfi nemur bakgrunnsljós eða

kertaljós innandyra. Vegna langs lýsingartíma verður að halda myndavélinni kyrri eða á stöðugu

yfirborði.

Íþróttir

Notað við töku af myndefni á mikilli hreyfingu. Stuttur lýsingartími dregur úr óskýrleika vegna hreyfingar.

Skjal

Notað fyrir myndir af texta eða teikningum. Gefur myndinni aukin og skarpari birtuskil.

Flugeldar

Notað til að taka myndir af flugeldum í allri sinni dýrð.

Þessi stilling er einungis í boði í tökustillingunni

Handvirkt.

91

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.