Sony Xperia M2 Aqua - Myndir og myndskeið skoðuð

background image

Myndir og myndskeið skoðuð

Notaðu albúmsforritið til skoða myndir og spila myndskeið sem þú tókst með

myndavélinni eða til að skoða svipað efni sem þú hefur vistað í tækinu. Allar myndir og

myndskeið birtast í töflu og er raðað í tímaröð.

1

Pikkaðu á táknið til að opna heimavalmynd albúms

2

Skoðaðu skyggnusýningu af öllum myndunum eða þeim sem þú hefur bætt við í uppáhalds

3

Dragðu vinstri brún skjásins til hægri til að opna heimavalmynd albúms

4

Dagsetningarsvið hluta í núverandi flokki

5

Pikkaðu á mynd eða myndskeið til að opna það á öllum skjánum

6

Flettu upp eða niður til að skoða efni

Ljósmyndir og myndskeið skoðuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Albúm.

3

Pikkaðu á mynd eða myndskeið sem þú vilt skoða. Ef beðið er um það pikkarðu á

>

Myndskeið > AÐEINS EINU SINNI.

4

Flettu til vinstri til að skoða næstu mynd eða myndskeið. Flettu til hægri til að

skoða myndina eða myndskeiðið á undan.

Ef þú vilt breyta forritinu sem þú valdir sem sjálfgefið til að opna myndir eða myndskeið

pikkarðu á

Stillingar > Forrit og strýkur yfir á flipann Öll, velur forritið og pikkar á HREINSA

SJÁLFGEFIÐ undir Opna sjálfgefið.

Ef stefna skjásins breytist ekki sjálfkrafa þegar þú snýrð tækinu á hlið pikkarðu á

Snúa

innihaldi skjásins undir Stillingar > Skjár > Þegar tækinu er snúið.

Stærð smámynda breytt

Þegar smámyndir mynda og myndskeiða eru skoðaðar í albúmi skaltu glenna tvo

fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða klípa tvo fingur saman til að minnka aðdrátt.

Aðdráttur notaður á mynd

Þegar þú ert að skoða mynd glennir þú tvo fingur í sundur til að auka aðdrátt, eða klípur

tvo fingur saman til að minnka aðdrátt.

Myndir sýndar í skyggnusýningu

1

Þegar þú skoðar mynd pikkarðu á skjáinn til að birta tækjastikur, pikkaðu síðan á

>

Skyggnusýning til að byrja að spila myndir í albúminu.

2

Pikkaðu á mynd til að ljúka skyggnusýningunni.

95

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Myndskeiðsspilun

1

Finndu og pikkaðu á myndskeiðið sem þú vilt spila í albúminu.

2

Pikkaðu á og svo

Myndskeið > AÐEINS EINU SINNI.

3

Ef spilunarstjórntakkarnir birtist ekki pikkarðu á skjáinn til að sýna þá. Til að fela

stjórntakkana pikkarðu aftur á skjáinn.

Hlé á myndskeiði

1

Þegar myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Bankaðu á .

Til að spóla myndskeiði áfram eða til baka

1

Þegar myndskeið er spilað skaltu pikka á skjáinn til að birta stýritakkana.

2

Dragðu vinnslustikumerkinu til vinstri til að spóla til baka eða til hægri til að spóla

áfram.

Til að stilla hljóðstyrk myndskeiðs

Ýttu á hljóðstyrkstakkann.