Sony Xperia M2 Aqua - Endurræsing og endurstilling tækisins

background image

Endurræsing og endurstilling tækisins

Hægt er að þvinga tækið til að endurræsast eða slökkva á sér ef það verður óvirkt eða

endurræsist ekki eðlilega. Engar stillingar eða persónuleg gögn munu eyðast.
Þú getur endurstillt tækið þitt í upprunalegar stillingar. Þessi aðgerð er stundum

nauðsynleg ef tækið hættir að virka eðlilega, en athugaðu að ef þú vilt halda einhverjum

mikilvægum gögnum verðurðu fyrst að taka öryggisafrit af þeim á minniskort eða annars

konar ytra minni. Nánari upplýsingar

Öryggisafritun og endurheimt efnis

á bls. 127.

129

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Ef ekki tekst að ræsa tækið eða þú vilt núllstilla hugbúnað tækisins getur þú notað

Xperia™ Companion til að gera við tækið. Frekari upplýsingar um hvernig eigi að nota

Xperia™ Companion eru á

Tölvuverkfæri

.

Verið getur að tækið geti ekki endurræst ef hleðsla rafhlöðunnar er lítil. Tengdu tækið við

hleðslutæki og reyndu aftur að endurræsa.

Tækið þvingað til að endurræsa sig

1

Ýttu á og haltu inni rofanum .

2

Í valmyndinni sem opnast pikkarðu á

Endurræsing. Tækið endurræsist sjálfkrafa.

Tækið þvingað til slökkva á sér

1

Fjarlægðu hlífina á raufunum fyrir nano SIM-kortið og minniskortið.

2

Ýttu á OFF-takkann með því að nota penna eða álíka verkfæri.

Ekki nota of hvassa hluti sem gætu skemmt OFF-takkann.

Skipta í sjálfgefnar stillingar

Til að komast hjá varanlegu tjóni á tækinu skaltu ekki endurræsa það á meðan núllstilling

stendur yfir.

1

Áður en þú byrjar skaltu taka afrit af öllum mikilvægum gögnum sem vistuð eru í

innra minni tækisins á minniskort eða annars konar ytra minni.

2

Í Heimaskjár, pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar >Öryggisafrit og núllstilling > Núllstilla símann.

4

Til að eyða upplýsingum, eins og myndum og tónlist úr innri geymslu merkirðu við

Eyða innri geymslu gátreitinn.

5

Pikkaðu á

Núllstilla síma.

6

Teiknaðu opnunarmynstur skjásins, eða sláðu inn opnunarlykilorð skjásins eða PIN

ef þörf krefur til að halda áfram.

7

Til að staðfesta pikkarðu á

Eyða öllu.

Tækið þitt skiptir ekki í nýrri hugbúnað Android™ þegar þú skiptir í sjálfgefnar stillingar.

Ef þú gleymir lykilorði, PIN eða mynstri til að opna skjáinn, geturðu notað viðgerðareiginleika

tækisins í Xperia™ Companion forritinu til að eyða út þessu öryggislagi. Þú þarft að gefa

innskráningu í Google reikninginn til að framkvæma þessa aðgerð. Með því að velja

viðgerðareiginleikann enduruppseturðu hugbúnað fyrir tækið og gætir tapað persónulegum

gögnum um leið.

Gert við tækið með Xperia™ Companion

Áður en gert er við hugbúnað þarftu að vera með Google™ innskráningarupplýsingarnar þínar

á reiðum höndum. Allt eftir því hvernig öryggisstillingum þínum er háttað gætir þú þurft að slá

þær inn til að ræsa tækið að hugbúnaðarviðgerð lokinni.

130

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion for Windows

(http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion) eða Xperia™

Companion for Mac OS

(http://support.sonymobile.com/tools/xperia-companion-mac) sé uppsett í PC-
eða Mac

®

tölvunni þinni.

2

Tengdu tækið við tölvu með USB-snúru.

3

Opnaðu Xperia™ Companion hugbúnaðinn í tölvunni, fari hann ekki sjálfkrafa í

gang, og veldu

Software repair á skjánum.

4

Farðu eftir leiðbeiningunum á skjánum til að setja hugbúnaðinn upp aftur og ljúka

viðgerðinni.