Sony Xperia M2 Aqua - Tækið uppfært

background image

Tækið uppfært

Þú skalt uppfæra hugbúnað tækisins til að fá nýjustu eiginleikana, viðbætur og

lagfæringar og tryggja hámarksafköst. Þegar hugbúnaðaruppfærsla er í boði birtist á

stöðustikunni. Þú getur einnig athugað hvort það séu nýjar uppfærslur.
Einfaldasta leiðin til að setja upp hugbúnaðaruppfærslu er að gera það þráðlaust úr

tækinu. Sumar uppfærslur eru þó ekki í boði til niðurhals um þráðlausa tengingu. Þú þarft
þá að nota Xperia™ Companion forritið í tölvu eða Apple

®

Mac

®

tölvu til að uppfæra

tækið þitt.
Frekari upplýsingar um uppfærslur hugbúnaðar er að finna á

www.sonymobile.com/update

.

Ófullnægjandi geymslurými getur komið í veg uppfærslur. Tryggðu að þú hafa nægilegt

geymslurými áður en þú reynir að uppfæra.

Til að athuga eftir nýjum hugbúnaði

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Um símann > Hugbúnaðaruppfærsla.

Ef enginn nýr hugbúnaður er í boði er mögulegt að þú hafir ekki nóg af minni á tækinu þínu. Ef

Xperia™ tækið hefur minna en 500 MB af lausu innra minni (minnið í tækinu) í boði, færðu ekki

neinar upplýsingar um nýjan hugbúnað. Eftirfarandi tilkynning birtist á tilkynningasvæðinu til að

vara við vöntun á geymslurými: Geymslurými er búið. Sumir kerfisvalkostir virka ekki. Ef þú

færð þessa tilkynningu verður þú að losa innra minni (minni tækisins) áður en þú getur fengið

tilkynningar um nýjan hugbúnað sem eru í boði.

Til að sækja og setja upp kerfisuppfærslu

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Um símann > Hugbúnaðaruppfærsla.

3

Ef kerfisuppfærslur eru í boði pikkarðu á

Sækja til að sækja það í tækið þitt.

4

Þegar niðurhali er lokið pikkarðu á

Setja upp og fylgdu skjáleiðbeiningunum til að

ljúka við uppsetninguna.

Kerfisuppfærsla sótt og sett upp á tilkynningaskjánum

1

Dragðu stöðustikuna niður á við til að opna tilkynningaskjáinn.

2

Flettu niður og veldu viðeigandi kerfisuppfærslu, pikkaðu síðan á

Sækja.

3

Þegar niðurhalinu lýkur opnarðu tilkynningaskjáinn aftur, sé hann lokaður, pikkar á

Setja upp og fylgir leiðbeiningunum til að ljúka uppsetningunni.

Uppfærðu tækið þitt með tölvunni

Hægt er að sækja og setja upp hugbúnaðaruppfærslur á tækið með því að nota tölvu
með Internet tengingu. Þú þarft USB-snúru og tölvu eða Apple

®

Mac

®

tölvu sem keyrir

Xperia™ Companion hugbúnað.

Ef þú ert ekki með Xperia™ Companion hugbúnað setja upp í viðkomandi tölvu, tengdu tækið

við tölvu með USB-snúru og fylgdu skjáleiðbeiningunum um uppsetningu.

Tækið uppfært með tölvu

1

Gakktu úr skugga um að Xperia™ Companion forritið sé uppsett í PC eða Apple

®

Mac

®

tölvunni þinni.

2

Tengdu tækið við tölvuna með USB-snúrunni.

3

Opnaðu Xperia™ Companion, fari það ekki sjálfkrafa í gang.

4

Tölva: Ef ný hugbúnaðaruppfærsla finnst birtist sprettigluggi. Fylgdu

leiðbeiningunum á skjánum til að setja inn viðeigandi uppfærslur.

Þegar þú tengir tækið við tölvuna með USB-snúru, er beðið um að Xperia™ Companion

hugbúnaðurinn sé settur upp, eða hætt við, nema þú hafir áður valið

Ekki sýna aftur.

123

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.