Sony Xperia M2 Aqua - Skjár tækisins speglaður þráðlaust á sjónvarpsskjá

background image

Skjár tækisins speglaður þráðlaust á sjónvarpsskjá

Þú getur notað skjáspeglun til að sýna skjá tækisins á sjónvarpsskjá eða öðrum stórum

skjá án þess að tengja með snúru. Wi-Fi Direct™ tæknin kemur á þráðlausri tengingu á

milli tækjanna tveggja svo þú getur látið fara vel um þig og skoðað uppáhaldsmyndirnar

þínar í sófanum. Þú getur einnig notað þennan eiginleika til að hlusta á tónlist úr tækinu í

gegnum hátalara sjónvarpsins.

Sjónvarpið verður að styðja við Wi-Fi CERTIFIED Miracast™ skjáspeglun svo ofangreind virkni

eigi við. Ef sjónvarpið þitt styður ekki skjáspeglun gætirðu þurft að kaupa þráðlaust

skjámillistykki sérstaklega.

Þegar skjáspeglun er notuð getur dregið úr myndæðum ef truflun frá öðrum Wi-Fi® netkerfum

er fyrir hendi.

Skjár tækisins speglaður á sjónvarpsskjá

1

Sjónvarpið: Fylgdu leiðbeiningum í notendahandbók sjónvarpsins til að kveikja á

skjáspeglunareiginleikanum.

2

Tækið: Á Heimaskjár pikkarðu á .

3

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Xperia™ tengimöguleikar > Skjáspeglun.

4

Pikkaðu á

Byrja.

5

Pikkaðu á

Í lagi og veldu tæki.

Ekki halda fyrir Wi-Fi loftnetssvæðið á tækinu þegar skjáspeglun er notuð.

Sjónvarpið verður að styðja við Wi-Fi CERTIFIED Miracast™ skjáspeglun svo ofangreind virkni

eigi við.

Skjáspeglun á milli tækja stöðvuð

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Xperia™ tengimöguleikar > Skjáspeglun.

3

Pikkaðu á

Aftengja og svo á Í lagi.