Sony Xperia M2 Aqua - Tilkynningar

background image

Tilkynningar

Tilkynningar láta þig vita af viðburðum, t.d. nýjum skilaboðum og dagbókartilkynningum,

og aðgerðum sem eru í gangi, t.d. niðurhali skráa. Tilkynningar birtast á eftirfarandi

stöðum:

Stöðustikunni

Tilkynningaskjánum

Lásskjánum

Að opna og loka tilkynningaskjá

1

Til að opna tilkynningaspjaldið dregur þú stöðustikuna niður.

2

Til að loka tilkynningaspjaldinu dregur þú spjaldið upp.

Brugðist við tilkynningu á tilkynningaskjá

Pikkaðu á tilkynninguna.

Til að hafna tilkynningu af Tilkynningaskjánum

Styddu fingri á tilkynningu og ýttu henni til vinstri eða hægri.

Tilkynning víkkuð á tilkynningaskjá

Dragðu tilkynninguna niður.

Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.

Allar tilkynningar hreinsaðar af tilkynningaskjánum

Pikkaðu á

.

Brugðist við tilkynningu á lásskjá

Tvípikkaðu á tilkynninguna.

Tilkynningu hafnað á lásskjánum

Styddu fingri á tilkynninguna og ýttu henni til vinstri eða hægri.

Tilkynning víkkuð á lásskjá

Dragðu tilkynninguna niður.

Ekki er hægt að víkka allar tilkynningar.

Umsjón með tilkynningum á lásskjá

Þú getur stillt tækið þannig að aðeins valdar tilkynningar birtist á lásskjánum. Þú getur

gert allar tilkynningar, og efni þeirra, aðgengilegar, falið viðkvæmt efni fyrir allar tilkynningar

eða tiltekin forrit eða valið að sýnar engar tilkynningar.

23

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

Val á tilkynningum til að birta á lásskjá

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Þegar tækið er læst.

3

Veldu valkost.

Valkostir tilkynninga á lásskjá

Sýna allt innihald

tilkynninga

Fáðu allar tilkynningar á lásskjáinn. Þegar kveikt er á þessari stillingu skaltu hafa í huga

að allt efni (þ. á m. móttekinn tölvupóstur og spjall) er sýnilegt á lásskjánum nema þú

merkir viðkomandi forrit sem

Viðkvæmt í Forritatilkynningar stillingavalmyndinni.

Fela innihald

viðkvæmra

tilkynninga

Þú verður að hafa stillt PIN-númer, lykilorð eða munstur til að læsa skjánum svo þessi

stilling sé tiltæk.

Innihald falið birtist á lásskjánum þegar viðkvæmar tilkynningar berast.

Þú færð t.d. tilkynningu um móttekinn tölvupóst eða spjall, en innihaldið er ekki sýnilegt

á lásskjánum.

Sýna engar

tilkynningar

Þú færð engar tilkynningar á lásskjáinn.

Tilkynningatíðni forrits stillt

Hægt er að stilla tilkynningar fyrir hvert forrit. Til dæmis er hægt að hindra allar

tölvupóststilkynningar, setja Facebook™ tilkynningar í forgang og sjá

skilaboðatilkynningar á lásskjánum.

Tilkynningatíðni forrits stillt

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning > Forritatilkynningar.

3

Veldu forritið þar sem þú vilt breyta tilkynningastillingum.

4

Dragðu viðkomandi sleða til hægri.

Tilkynningastig og valkostir fyrir tiltekin forrit

Setja á

bannlista

Sýna aldrei tilkynningar fyrir valið forrit.

Forgangur

Forgangstilkynningar birtast á lásskjánum fyrir ofan allar aðrar tilkynningar.

Viðkvæmt

Þessi valkostur er einungis tiltækur ef þú hefur stillt PIN-númer, lykilorð eða munstur sem

skjálás og valið

Sýna allt innihald tilkynninga í Þegar tækið er læst stillingunni.

Tilkynningar fyrir forritið birtast á lásskjánum, en efni þeirra er ekki sýnilegt.

Tilkynningaljós

Tilkynningaljósið lætur vita um stöðu rafhlöðu og fleira. Til dæmis þýðir blikkandi hvítt ljós

nýtt skeyti eða ósvarað símtal. Tilkynningaljósið er sjálfvirkt en hægt er að slökkva á því

handvirkt.

Þegar slökkt er á tilkynningaljósinu kviknar bara á því þegar varað er við lítilli hleðslu rafhlöðu,

t.d. þegar hún fer undir 15 prósent.

Kveikt á tilkynningaljósi

1

Á heimaskjánum pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Hljóð og tilkynning.

3

Dragðu sleðann við hliðina á

Tilkynningarljós til hægri.

24

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.